Úthlutunareglur og verð

Rétt til dvalar í Sóltúnum eiga allir félagsmenn Ísfirðingafélagsins, sem greitt hafa árgjald til félagsins. Úthlutað er sérstaklega fyrir sumar, þ.e. tímabilið frá miðjum maí og til loka september. Húsnefnd Sóltúna, skipuð þremur stjórnarmönnum Ísfirðingafélagsins, annast úthlutanir í samráði við stjórn þess.

Sækja skal um dvöl fyrir sumartímann fyrir 25. apríl ár hvert. Pantanir vegna sumarúthlutunar þarf að staðfestsa með greiðslu fyrir 15. maí. Að þeim tíma liðnum verður húsinu úthlutað til næsta félagsmanns á biðlista.

Yfir sumartímabilið er aðeins hægt að leigja húsið í viku í senn. Yfir vetrartímabil er að lágmarki hægt að bóka 3 daga og að hámarki 7 daga í senn. Helgarnar eru leigðar í heilu lagi, frá föstudegi og fram á sunnudag.

Lausum tímum skal úthlutað eftir samkomulagi og reglum sem stjórnin setur.
Umsóknum skal skilað rafrænt á heimasíðu Ísfirðingafélagsins, www.isfirdingafelagid.is, með tölvupósti á netfangið soltun@isfirdingafelagid.is eða skriflega í hefðbundnum pósti. Í umsókn skal koma fram nafn og kennitala umsækjanda, símanúmer og sá dvalartími sem sótt er um. Dvalarvikan er frá föstudegi kl. 17.00 til föstudags kl. 12.00.

Sæki tveir félagsmenn eða fleiri um sama dvalartíma nýtur sá forgangs, sem lengst hefur
greitt árgjald til Ísfirðingafélagsins. Séu  tveir eða fleiri jafnir, að þessu leyti, ræður aldur
félagsmanna úthlutun (sá sem eldri er nýtur þá forgangs). Að öðru leyti njóta þeir félagsmenn forgangs sem ekki hafa fengið úthlutun áður.
Leigugjald greiðist inn á reikning félagsins 525-26-4704, kt. 530189-1129. Nánari upplýsingar, húsreglur og leiðbeiningar er að finna á vef félagsins.
 
Leigugjald fyrir viku er 40.000 kr.

ATH: Óheimilt er að vera með gæludýr.