Heil og sæl,

Okkur hjá bókaútgáfunni Opnu er mikill heiður að bjóða ykkur í Ísfirðingafélaginu sérstakt tilboð af bókinni Veislurnar í Neðsta.

Leiðbeinandi verð bókarinnar er 3.990 kr.

Félögum  í Ísfirðingafélaginu viljum við bjóða 30% afslátt eða fá bókina  á 2.790 kr. Byggðasafn Vestfjarða hefur frá árinu 2002 blásið til árlegrar saltfiskveislu á Ísafirði þar sem hráefnið er sólþurrkaður þorskur sem breiddur hefur verið út og þurrkaður á fiskreit safnsins. Leitað var til valinkunnra saltfiskunnenda sem rómaðir eru af afrekum í eldhúsum heimila sinna og þeir göldruðu fram fjölbreytilegar og girnilegar uppskriftir á þessu magnaða hráefni sem telja má merkasta framlag Íslendinga til matargerðarlistarinnar.

Í bókinni Veislurnar í Neðsta – saltfiskuppskriftir matgæðinga eldhússins heima er að finna drjúgan hluta þessara veislurétta en jafnframt margvíslegan fróðleik í máli og fjölmörgum myndum um sögu saltfiskvinnslunnar vestra og þær framfarir sem þar urðu. Einnig er að finna í bókinni ábendingar um þau drykkjarföng sem best hæfa þessu lostæti.

Geisladiskurinn Ball í Tjöruhúsinu með tónlist Saltfisksveitar Villa Valla fylgir bókinni. Þar má finna veisluglauminn í dúnmjúkum enskum valsi, rúmbu, cha cha cha, sömbu og jive. Söngkonan Jóhanna V. Þórhallsdóttir stendur í stafni og að baki henni Vilberg Vilbergsson, Páll Torfi Önundarson, Tómas R. Einarsson og Matthías MD Hemstock. Tónlist þeirra er kryddið sem ratar í alla réttina.

Bókin er samstarfsverkefni Byggðasafns Vestfjarða og Bókaútgáfunnar Opnu. Ýmsir höfundar eiga efni í bókinni, en Jón Sigurpálsson ritstýrði verkinu. Anna Björnsdóttir hannaði kápu og Prentsmiðjan Oddi annaðist prentvinnslu.

Sendingarkostnaður á bókinni heim í hús er 290 krónur en það má sleppa honum með því að heimsækja okkur í Skipholt 50 B.  (gengið er inn að vestanverðu af bílastæði) Þeir sem vilja panta eintök vinsamlegast sendið tölvupóst á panta@opna.is eða hringið í síma 578 9080.

Opna bókaútgáfa - Skipholti 50 B - 105 Reykjavík  - Sími 578 9080 - www.opna.is



Varðveitum upprunann

Við erum og verðum alltaf ísfirðingar!




Vestanpóstarnir allir komnir á vefinn!:

Vestanpósturinn 2011 kemur út skömmu fyrir páska. Félagsmenn eru hvattir til að leggja blaðinu til efni, ljósmyndir, hugmyndir. Vinsamlegast hafið samband Jakob Fal Garðarsson, jfg@frumtok.is  eða Pál Ásgeir Ásgeirsson, lysandi@internet.is

Vestanpósturinn 2009
Vestanpósturinn 2008
Vestanpósturinn 2007
Vestanpósturinn 2006
Vestanpósturinn 2005
Vestanpósturinn 2004
Vestanpósturinn 2003


Skráðu þig á póstlistann



Könnun

Kubbi eða Kubbur við Skutulsfjörð? Hvað heldur þú?