Fréttir úr starfinu

3.5.2012

Vestfirskir tónleikar á Flúðum og í Reykjavík

   
 Smellið á mynd til að lesa dagskrá ( pdf snið )
  Smellið á mynd til að lesa dagskrá ( pdf snið )


30.4.2012

Ísfirðingamessa 2012 - NÝR BISKUP ÍSLANDS Í ÍSFIRÐINGSMESSU

Fögnum sumri, gleðjumst saman og skundum í Ísfirðingamessu sunnudaginn 20. maí kl. 14.00. Hin árlega messa Ísfirðingafélagsins verður að vanda í Neskirkju.

Ísfirðingarnir sr. Örn Bárður Jónsson og nýkjörinn biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, sjá um messugjörð.

Hnausþykkar hnallþórur og hitaeiningaríkar brauðtertur verða á boðstólum í kirkjukaffinu sívinsæla að messu lokinni. Síðdegis, um kl. 1600, verður á sama stað, þe. í safnaðarheimili Neskirkju, haldinn aðalfundur Ísfirðingafélagsins. Bara gaman. Ísfirðingar nær og fjær eru hvattir til að fjölmenna í messu, taka með vini og vandamenn og njóta þess að hittast á góðum degi með enn betra fólki.
2.2.2012

Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins 2012

Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins var haldið í Iðnó við Reykjavíkurtjörn, föstudagskvöldið 27. janúar s.l.  Mikil og góð stemning var meðal þeirra fjölmörgu Ísfirðinga sem komu til að hitta sveitunga sína að vestan.   
Kvöldið byrjaði á að gestir gæddu sér á nýbökuðum rjómapönnukökum.  Haraldur Leifsson, fótboltapúki fór á kostum sem ræðumaður kvöldsins og var mikið hlegið að sögum af uppvaxtarárum hans á Ísafirði. Tónlistin var í höndum hins fjölhæfa Halldórs Smárasonar.  Meðal þeirra sem stigu á stokk voru stórsöngkonan Sigríður Thorlacius, söngkona hljómsveitarinnar Hjaltalín, og Ísfirðingurinn Skúli „mennski“ Þórðarson.
Happdrættið var á sínum stað og þakkar Ísfirðingafélagið stuðningsaðilum kvöldsins kærlega fyrir þeirra framlag.  Allt þetta gerðist undir vaskri veislustjórn Hnífsdælingsins, tónlistarmannsins, bóksalans og fyrrum varabæjarfulltrúans Kristjáns Freys Halldórssonar.
Síðan var dansað fram eftir nóttu við tónlist Halldórs og félaga hans, Bolvíkinganna, Birgis og Valdimars Olgeirssona og Kristins Gauta Einarssonar.
Meðfylgjandi eru myndir frá Sólarkaffinu. Smellið hér til að skoða.

27.1.2012

Sigríður Thorlacius og Skúli mennski á Sólarkaffinu

Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins í Reykjavík fer fram í Iðnó við Reykjavíkurtjörn í kvöld. Þó bryddað verði upp á ýmsum nýjungum verða gamlar hefðir í hávegum hafðar. Fyrst er að nefna nýbakaðar rjómapönnukökur eins og hver getur í sig látið og ræðumaður kvöldsins, Haraldur Leifsson, verður á sínum stað. Að vanda verður boðið upp á ýmis glæsileg skemmtiatriði. Meðal þeirra sem stíga á stokk eru stórsöngkonan Sigríður Thorlacius, söngkona hljómsveitarinnar Hjaltalín, og Ísfirðingurinn Skúli „mennski“ Þórðarson.

Miðaverði hefur verið stillt í hóf og samkoman gerð frjálslegri. Þá verða ekki frátekin sæti heldur gert ráð fyrir að fólk geti fært sig, hitt fleiri og skemmt sér. Eða eins og veislustjórinn sagði í útvarpinu um daginn: „Þetta verður svona Sjalla- og Krúsarstemmning sem jafnvel minnir jafnvel á Félagsheimilið í Hnífsdal.“

Enn eru til miðar og er hægt að tryggja sér slíka með því að hringja í Iðnó í dag í síma 562 9700 eða mæta bara klukkan 20 þegar húsið opnar og tilboðið gildir á barnum
Fréttasafn - allar fréttir


Myndir frá Sólakaffi 2010

Svipmyndir frá einstaklega vel heppnuðu Sólarkaffi 2010 eru komnar á vefinn okkar. Smellið hér til að skoða.



Varðveitum upprunann

Við erum og verðum alltaf ísfirðingar!




Vestanpóstarnir allir komnir á vefinn!:

Vestanpósturinn 2011 kemur út skömmu fyrir páska. Félagsmenn eru hvattir til að leggja blaðinu til efni, ljósmyndir, hugmyndir. Vinsamlegast hafið samband Jakob Fal Garðarsson, jfg@frumtok.is  eða Pál Ásgeir Ásgeirsson, lysandi@internet.is

Vestanpósturinn 2009
Vestanpósturinn 2008
Vestanpósturinn 2007
Vestanpósturinn 2006
Vestanpósturinn 2005
Vestanpósturinn 2004
Vestanpósturinn 2003


Skráðu þig á póstlistann



Könnun

Kubbi eða Kubbur við Skutulsfjörð? Hvað heldur þú?