Ísfirðingafélagið var stofnað í Reykjavík 22. apríl 1945. Tilgangur
félagsins er að viðhalda kynningu milli brottfluttra Ísfirðinga og efla
tryggð þeirra við átthagana. Ísfirðingafélagið stendur fyrir útgáfu
Vestanpóstsins árlega. Auk þessu eru nokkrir fastir liðir í starfsemi
þess s.s. Sólarkaffið, kirkjukaffi og Sólkveðjuhátíð. Félagið á
orlofshús á Ísafirði, Sóltún og einnig orlofsíbúð á Spáni, Sólströnd.