Úthlutunarreglur

Rétt til dvalar í orlofsíbúðinni eiga allir félagsmenn Ísfirðingafélagsins, sem greitt hafa árgjald til félagsins.
Húsnefnd, skipuð þremur stjórnarmönnum Ísfirðingafélagsins, annast úthlutanir í samráði við stjórn þess.

Umsóknum skal skilað skriflega.


Sæki tveir félagsmenn eða fleiri um sama dvalartíma nýtur sá forgangs, sem lengst hefur greitt árgjald til Ísfirðingafélagsins. Séu tveir eða fleiri jafnir, að þessu leyti, ræður aldur félagsmanna úthlutun (sá sem eldri er nýtur þá forgangs).

Að öðru leyti njóta þeir félagsmenn forgangs sem ekki hafa fengið úthlutun áður.

Leigugjald greiðist eigi síðar en  fjórum  vikum fyrir dvöl inn á reikning félagsins 0101-26-043060 kt. 530189-1129.
Dvalarvikan er frá laugardegi kl. 17.00 til næsta laugardags kl. 12.00 eða samkv. samkomulagi.

Nánari upplýsingar, húsreglur og leiðbeiningar sendast þeim sem úthlutun fá hverju sinni.