Sólströnd er 70 m2 íbúð með tveimur svefnherbergjum, eldhúsi, stofu, salerni með sturtu í baði og þvottaherbergi. Auk þessu eru afgirtar rúmgóðar svalir. Íbúðin er leigð út með húsgögnum. Til staðar eru helstu hreinlætisvörur, handklæði og þurrkur, auk rúm- og sængurfatnaðar fyrir 6.
Svefnaðstaða
Queen size hjónarúm í einu herbergi, tvö stök rúm í öðru herbergi og svefnsófi í stofu (hentar ágætlega fyrir 2 börn).
Húsgögn
Svefnsófi, sófaborð, stækkanlegt eldhúsborð og 4 stólar, 3 klappstólar, náttborð, rúm, borð á svalir og 2 stólar, 2 sólbekkir.
Tæki
Loftkæling og hitun, þvottavél, uppþvottavél, eldavél, bakarofn, örbylgjuofn, ísskápur með frystihólfi, sjónvarp, DVD tæki, útvarpstæki og geislaspilari, hraðsuðuketill, brauðrist, straujárn, strauborð/stigi, hárþurrka, hitamælir inni og úti.
Annað
Borðbúnaður, rúmföt, handklæði, hamar, sög og borvél.