Spænski strandbærinn Torrevieja
- sælureitur Ísfirðingafélagsins við Miðjarðarhafið
Hafnarbærinn Torrevieja er í suðurhluta Alicante héraði. Bærinn er innan marka Vega Baja umdæmis. Kjörgengir íbúar Torrevieja eru ríflega 81 þúsund innan héraðs sem liggur að Guardamar del Segura í norðri, Rojales og Benijófar í vestri, Montesinos og San Miguel de Salinas í suð-vestri og að Orihuela ströndinni í suðri.
Torrevieja er í um 41 kílómetra suður af Alicante flugvelli. Í Torrevieja er verndaður þjóðgarður með tveim söltum stöðuvötnum. Strandlengja bæjarins er um 20 kílómetrar að lengd með 6 stórum baðströndum. Þær heita La Mata, Cabo Cervera, Los Locos, El Cura, Los Náufragos og Ferris. Þar eru líka um 20 vogar víkur sem eru umluktar klettum.
Bærinn Torrevieja var stofnaður 3. mars 1803 þegar Charles IV konungur Spánar fyrirskipaði stjórn Royal Salt Works fyrirtækisins (konunglegu saltvinnslunnar) að flytja sig frá La Mata á nýtt svæði Torre-viexa. Nafnið á þessu landnámi er dregið af hinum mörgu skipaeftirlitsturnum eða vitum sem voru meðfram Miðjarðarhafsströndinni. Má sjá eftirmynd þessara fyrirbæra á Torre del Moro panoramic útsýnisstaðnum. Flutningur stjórnar Royal Salt Works til Torrevieja markar upphafið að sögu bæjarins.
Við stofnun bæjarins fór íbúum á svæðinu að fjölga og byggðist fjölgunin á vexti atvinnuvega í sambandi við fiskveiðar og saltvinnslu sem er stunduð þar enn.
Erfitt er að finna góða samantekt um sögu Torrevieja, en sumir atburðir standa þó upp úr. Þar má nefna mannskæða jarðskjálfta sem riðu yfir Torrevieja árið 1829. Leiddu þessar hörmungar til endurreisnar bæjarins undir stjórn Larramendi, arkitekts hersins. Íbúar bæjarins upplifðu síðar líðfræðilega vakningu sem fór þó ekki að ná verulegum styrk fyrr en á síðasta fjórðungi tuttugustu aldar. Þess vegna er bærinn í dag eins alþjóðlegur og fjölmenningarlegur og raun ber vitni. Um 100.000 innflytjendur af um 180 þjóðernum eru nú skráðir íbúar í sveitarfélaginu.